• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Fyrsta kóræfing haustsins og fimm á fjalli

Fyrsta kóræfing haustsins og fimm á fjalli

1. september 2008
Kvennakór Garðabæjar hóf formlega starfsemi haustannar með æfingu mánudaginn 25. ágúst. Kórinn æfir öll mánudagskvöld kl. 19.30 – 22.30 en sú nýbreytni verður nú tekin upp að í stað síðdegisæfinga annan hvern miðvikudag verður æft eitt fimmtudagskvöld í mánuði. Eftirvænting og gleði var ríkjandi á þessari fyrstu æfingu haustsins. Kórstjóri og kórkonur, sem margar hverjar hafa verið í kórnum frá upphafi, glöddust yfir endurfundum og þá var því sömuleiðis tekið fagnandi að all nokkrir nýliðar hafa bæst í hópinn. Eru þessir nýju félagar boðnir innilega velkomnir í kórinn. Lesið frekar um spennandi starf Kvennakórs Garðabæjar í þessari frétt.Á sumrin eru haldnar grillveislur, farið í kaffihúsaferðir og fjallgöngur
Þótt hefðbundið kórstarf liggi niðri yfir sumarmánuðina gera kórfélagar þó ýmislegt til að styrkja vináttuböndin og efla samstöðuna. Til að mynda var efnt til grill-fjölskylduveislu í Heiðmörkinni á eilítið hráslagalegum sumardegi og eitt fallegt sumarkvöld gengu kórkonur saman frá Vídalínskirkju suður í Hafnarfjörð og skröfuðu og hlógu yfir kaffibollanum á Súfistanum. Þremur dögum eftir fyrstu kóræfingu var svo flautað til fjallgöngu og stefnan sett á Helgafell á Reykjanesi. Þangað mættu fimm þaulvanar; formaðurinn ungi (varla fimmtug) og fjórar úr klúbbnum 60+ en í þeim ágæta klúbbi er u.þ.b. þriðjungur kórfélaga. Þótt Veðurstofa Íslands hafi skömmu áður gefið út stormviðvörun og spáð talsverðri úrkomu - sem líklega hefur dregið úr fjallaþrá velflestra kórkvenna - lögðu vaskar göngukonur ótrauðar á fjallið, enda vel búnar og allar í toppformi. Spáin gekk að vísu eftir, það rigndi hressilega „með köflum“ og vindurinn reif á stundum óþyrmilega í vatns- og vindhelda gallana. Á toppinn komust þær þó léttilega, gæddu sér þar á nesti og skráðu nöfn sín stoltar á „spjöld sögunnar“, þ.e. í gestabók Helgafells. Á niðurleið fjarstýrði formaðurinn fjölskyldu sinni símleiðis sem óstudd af húsmóðurinni hafði það vandasama hlutverk með höndum að sjá um kvöldmatinn. Hinar eldri létu sér það í léttu rúmi liggja þótt enginn matur væri á borðum þeirra á hefðbundnum matartíma. En dásamlegt var að komast í heitt bað þegar heim var komið.
Kvennakór Garðabæjar hóf formlega starfsemi haustannar með æfingu mánudaginn 25. ágúst. Kórinn æfir öll mánudagskvöld kl. 19.30 – 22.30 en sú nýbreytni verður nú tekin upp að í stað síðdegisæfinga annan hvern miðvikudag verður æft eitt fimmtudagskvöld í mánuði. Eftirvænting og gleði var ríkjandi á þessari fyrstu æfingu haustsins. Kórstjóri og kórkonur, sem margar hverjar hafa verið í kórnum frá upphafi, glöddust yfir endurfundum og þá var því sömuleiðis tekið fagnandi að all nokkrir nýliðar hafa bæst í hópinn. Eru þessir nýju félagar boðnir innilega velkomnir í kórinn. Lesið frekar um spennandi starf Kvennakórs Garðabæjar í þessari frétt.Menningarvaka, afmælisfagnaður og aðventutónleikar er bara brot af því sem er á dagskrá hjá Kvennakór Garðabæjar í vetur
Að venju er dagskrá haustannar fjölbreytt. Árleg Haustvaka, menningarvaka í tali og tónum, verður haldin fimmtudaginn 16. október, með þátttöku góðra gesta úr Garðabæ. Aðeins rúmri viku síðar, eða laugardaginn 25. október, mun kórinn taka þátt í afmælisfagnaði Kórs Átthagafélags Strandamanna í Langholtskirkju. Ýmislegt fleira er á dagskránni, auk hátíðlegra aðventutónleika í desember og verða því gerð nánari skil síðar.

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra