Kvennakór Hornafjarðar heldur sína árvissu jólatónleika í Nýheimum miðvikudagskvöldið 10. desember kl. 20:00. Kórinn mun syngja bæði jólalög og ýmis hugljúf og falleg lög sem eiga vel við á aðventunni. Að loknum söng geta gestir gætt sér á margrómuðu tertuhlaðborði kvennakórskvenna.
Stjórnandi kórsins er Heiðar Sigurðsson og annast hann jafnframt undirleik ásamt hljómsveit, en í henni eru þeir Bragi Karlsson, Birkir Þór Hauksson og Þorkell Grétarsson.
Miðaverð er kr. 2.500,- (tertuhlaðborð innifalið - ekki tekin kort), en 12 ára og yngri fá frítt í fylgd með fullorðnum.