Það er nóg um að vera hjá Kvennakór Kópavogs um þessar mundir. Kórinn undirbýr nú ferð til Búdapest þar sem hann mun taka þátt í kórakeppninni; Musica Mundi. Stjórnandi Kvennakórs Kópavogs er Natalía Chow Hewlett. Á þessu ári heldur kórinn upp á fimm ára afmæli sitt og fagnar því meðal annars með glæsilegum tónleikum í Salnum í Kópavogi ásamt Regínu Ósk Óskarsdóttur og Englakór sem er barnakór einnig undir stjórn Natalíu. Tónleikarnir hefjast kl. 14 sunnudaginn 25. mars. Hægt er að kaupa miða í síma: 5 700 400.Fréttatilkynning frá Kvennakór Kópavogs
Kvennakór Kópavogs var stofnaður í janúar 2002 af Natalíu Chow Hewlett. Fyrsta starfsárið voru í kórnum um 60 konur sem sýnir hversu þarft framtak það var að stofna kvennakór í Kópavogi. Strax á stofnfundinum nefndi Natalía að vorið 2007, á 5 ára starfsafmæli kórsins, yrði kórakeppnin Musica Mundi í Búdapest sem gaman væri að taka þátt í. Síðan hefur verið stefnt að því leynt og ljóst og er nú í byrjun apríl fer kórinn til Búdapest og tekur þar þátt í umræddri keppni. Fjöldi kórkvenna hefur verið breytilegur þessi 5 ár, síðustu misserin um 35-45 konur. Tvennir tónleikar hafa verið haldnir flest starfsárin og hefur kórinn oftast staðið einn að þeim. Efnisskrá kórsins hefur verið fjölbreytt, t.d. þjóðlög frá ýmsum löndum, kirkjutónlist, bítlalög og negrasálmar. Kórinn hefur líka sungið á fjölmörgum tungumálum öðrum en íslensku eins og ensku, ítölsku, latínu, þýsku, kínversku og ungversku. Undirleikari kórsins frá upphafi hefur verið Julian Hewlett. Kvennakórinn fór í sína fyrstu utanlandsferð til Færeyja vorið 2005 og hélt þá tónleika í vinabæ Kópavogs, Klakksvík. Nú á 5 ára afmæli kórsins eru tónleikarnir veglegri en fyrr og höfum við fengið góðan liðsstyrk hjá frábæru listafólki. Regína Ósk Óskarsdóttir mun syngja á tónleikunum, bæði með kórnum og líka ein. Einnig mun Englakórinn, barnakór sem Natalía Chow stjórnar, syngja nokkur lög. Tónleikarnir verða í Salnum tónleikahúsi Kópavogs sunndaginn 25. mars kl. 14:00. Miðasala er í Salnum, virka daga frá kl. 10-16, sími 5 700 400. Miðaverð er kr. 1500 / 1200 kr, frítt fyrir 12 ára og yngri. Nánari upplýsingar á http://www.salurinn.is/