Kvennakór Reykjavíkur býður ykkur velkomna á vortónleika kórsins sem haldnir verða í Grensáskirkju miðvikudaginn 14. maí kl. 20 og laugardaginn 17. maí kl. 17. Að þessu sinni verður djass-sveifla á kórnum og höfum við fengið til liðs við okkur Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur söngkonu til að syngja með okkur. Einnig mun hún syngja nokkur lög ein. Stjórnandi kórsins er Sigrún Þorgeirsdóttir og píanóleikari Vignir Þór Stefánsson. Með honum leika Gunnar Hrafnsson á bassa og Erik Qvick á slagverk. Lagavalið er fjölbreytt; íslensk, sænsk og bandarísk lög og eru mörg þeirra þekkt djass- og dægurlög frá miðri síðustu öld. Tónleikamiða er hægt að panta hjá kórkonum, í netfangið kvkor(hjá)mmedia.is og í síma 896 6468 eftir kl. 16.
Viðburðaríku starfsári er senn að ljúka hjá kórnum. Eftir vortónleika síðast liðið vor fór kórinn á kóramót til Ítalíu. Á leið til Ítalíu kom kórinn við í París og hlaut þann heiður að fá að halda tónleika í Notre Dame kirkjunni. Reyndist það einstök upplifun fyrir kórinn. Í lok ferðar hélt kórinn svo tónleika í St. Ignatíusar kirkjunni í Róm. Frábærir tónleikar og fjöldi áheyrenda um 400 manns. Tvennir aðventutónleikar voru svo haldnir í byrjun desember 2007 og voru þeir vel sóttir. Í janúar átti kórinn 15 ára afmæli. Í byrjun árs 1993 var lítil og sakleysisleg auglýsing birt í blöðum þar sem auglýst var eftir konum í kvennakór og var aðsóknin slík að tíðindum þótti sæta. Kórinn er nú nýkominn heim frá norrænu kvennakóramóti í Þrándheimi í Noregi, en hið fyrsta héldum við í Reykjavík árið 2000. Var mjög myndarlega að öllu staðið og var stöðugt tónleikahald alla þrjá mótsdagana, þar sem konum bauðst að syngja með sínum kórum og hlusta á aðra kóra.
Ekki var kórinn fyrr kominn heim, en lagt var af stað á íslenskt kvennakóramót á Hornafirði, hið sjöunda í röðinni, en það var haldið 25. 27. apríl sl. Sjá http://www.hornafjordur.is/kvennakor Var mótið sérlega ánægjulegt og reyndust Hornfirðingar vera sérlega góðir gestgjafar. Í tilefni þessara kóramóta prjónuðu margar konur á sig vesti úr lopa eða annarri ull og vakti það víða hrifningu og gleði. Má meðal annars sjá hversu konur taka sig vel út í þessum vestum á myndasíðu kvennakórsins. http://public.fotki.com/Kvkor/ Þannig hefur margt verið að gera hjá kórnum ásamt með undirbúningi vortónleikanna.
Tónleikamiða er hægt að panta hjá kórkonum, í netfangið kvkor(hjá)mmedia.is og í síma 896 6468 eftir kl. 16. Með bestu sumarkveðjum, Kvennakór Reykjavíkur