Kvennakór Suðurnesja verður á ferð um Snæfellsnes helgina 19. - 20. maí og býður til tónleika í Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 19. maí kl. 16.00.
Einnig mun kórinn taka lagið í Vatnasafninu í Stykkishólmi sunnudaginn 20. maí kl. 13:30.
Kórinn flytur úrval íslenskra og erlendra laga sem senda sumaryl í hjörtun og einsöngvarar úr röðum kórsins koma fram.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.