Sala á nýju jólamerki Kvennakórs Garðabæjar 2014 hófst laugardaginn 22. nóvember síðast liðinn. Merkið er ætlað til upphengingar á jólatré eða á jólapakkann og með því fylgir gyllt snúra.
Jólamerkið til styrktar kórstarfinu og góðgerðarmálefni
Þetta er annað árið í röð sem kórinn lætur hanna sérstakt jólamerki með það fyrir augum að styrkja góðgerðarmálefni með hluta af söluágóða merkisins. Hönnuður merkjanna er kórkonan Guðrún Anna Magnúsdóttir, grafískur hönnuður sem rekur auglýsingastofuna Grafika.
Kórkonur munu selja merkið fram að jólum og verða þær sýnilegar víðs vegar um bæinn við hin ýmsu tækifæri.
Konukot fær styrk frá Kvennakór Garðabæjar
Konukot varð fyrir vali kórkvenna í ár og mun það hljóta ágóða af sölu jólamerkisins. Konukot er næturathvarf fyrir heimilislausar konur og er rekið sem samstarfsverkefni Rauða krossins í Reykjavík og Reykjavíkurborgar. Um leið og við vonum að styrkurinn komi sér vel fyrir athvarfið, sendum við þeim konum sem gista Konukot okkar bestu kveðjur og óskum þeim allra heilla og blessunar á jólum.
Aðventutónleikar miðvikudaginn 10. desember í Digraneskirkju
Kórinn æfir þessa dagana af mikilli elju fyrir komandi aðventutónleika. Allar eru konurnar að komast í jólaskapið og jólatónlistin, sem vissulega á sinn þátt í að göfga jólaandann, hljómar nú ljúflega á heimilium kvennanna þar sem æft er að miklu kappi milli kóræfinga. Tónleikarnir verða auglýstir nánar er nær dregur.
Framundan hjá Kvennakór Garðabæjar:
- 29. nóvember; þátttaka í góðgerðardegi á Álftanesi
- Í desember; jólasöngur hér og þar
- 6. desember; ljósin tendruð á jólatrénu í Garðabæ
- 7. desember kl. 20; þátttaka í aðventukvöldi í Vídalínskirkju
- 10. desember kl. 20; aðventutónleikar kórsins í Digraneskirkju
Kvennakór Garðabæjar á facebook
https://www.facebook.com/kvennakorgb