Laugardaginn 17. október kl. 16-18 verður aðalfundur Gígjunnar haldinn í Söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116, 105 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
-
Skýrsla stjórnar.
-
Reikningar.
-
Umræða um skýrslu og reikninga.
-
Tillögur og lagabreytingar.
-
Ákvörðun árgjalds.
-
Kosning formanns.
-
Kosning stjórnar- og varamanna.
-
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
-
Önnur mál.
Lagabreytingar og aðrar tillögur frá aðildarkórum skulu berast stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Í lok fundar verður til umfjöllunar Gildi nefnda og öflugs félagsstarfs í kvennakórum.
Framsögu hafa fulltrúar úr kvennakórum sem hafa mikla reynslu af þátttöku í félagsstarfi á vegum sinna kóra.
Aðildarkórar Gígjunnar eru hvattir til þess að senda formann og stjórnir sínar á fundinn. Hver kór fer með tvö atkvæði á fundinum.
Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína.
Aðildarkórar eru einnig hvattir til að koma með tillögur að lagabreytingum. Breytingartillögur þurfa að berast fyrir fundinn þannig að hægt sé að kynna þær fyrir öðrum kórum með tölvupósti. Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á netfangið: gigjan2003(hjá)gmail.com fyrir laugardaginn 3. október.
Við hlökkum til þess að sjá ykkur sem flestar á fundinum.
Með bestu kveðjum frá stjórn Gígjunnar;
Dagbjört, Kyrjurnar
Jófríður, Kvennakór Kópavogs
Þorgerður, Vox feminae
Þuríður, Kvennakór Reykjavíkur
Heiða, Kvennakór Suðurnesja