• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Kvennakór Hafnarfjarðar í söngferð til Slóveníu - ferðasaga

Kvennakór Hafnarfjarðar í söngferð til Slóveníu - ferðasaga

23. ágúst 2013

Kvennakór Hafnarfjarðar (stofnaður 1995) hélt í söngferð til Slóveníu dagana 11. - 19. júní 2013 með stjórnandann Ernu Guðmundsdóttur og undirleikarann Antoníu Hevesi í fararbroddi. Í farteskinu voru íslensk þjóðlög, fimmundarsöngvar og kirkjuleg verk. Bændaferðir sáu um allt skipulag ferðarinnar og fararstjóri var Soffía Halldórsdóttir. Flogið var til Munchen og ekið þaðan að Bledvatni þar sem við gistum eina nótt. Siglt var út í eyjuna Blejski otok og sungið „Heyr himnasmiður“ í Maríukirkjunni með frægu óskabjöllunni sem þar er.

Eftir hádegi var síðan haldið af stað til Portoroz þar sem dvalið var næstu sex nætur.

Fimmtudaginn 13. júní kl 20:00 voru svo fyrri tónleikar okkar. Þeir voru haldnir við Hótel Delfin í Isola, litlum bæ við Istríaströndina. Með okkur á þessum tónleikum voru einnig þarlendur karlakór sem ber það skemmtilega nafn Lopar og lítill kvennakór, Laseh. Í lok tónleikanna sungu allir kórarnir saman fallegt slóvenskt þjóðlag „Slovenija od kod lepote tvoje“ (hér má hlusta á lagið)

Er skemmst frá því að segja að vel og höfðinglega var tekið á móti okkur og tókust tónleikarnir ljómandi vel.

Næstu dagar voru notaðir til að skoða okkur um og fórum við meðal annars til Rovinj og Porec, sem eru fallegir litlir bæir í Króatíu.

Sunnudaginn 16. júní var svo komið að tónleikum okkar í St. Georgs kirkjunni í Piran sem er lítill bær stutt frá Portoroz. Þar sungu einnig blandaður kór, kvennakór og veiðimanna karlakór. Hófust þeir tónleikar kl. 21:00

Tókust þeir mjög vel og fannst okkur alveg yndislegt að syngja í þessari gömlu fallegu kirkju. Eftir tónleikana var kórkonum og mökum boðið til móttöku í garði kirkjunnar. Var þá orðið áliðið kvölds og komið myrkur og var garðurinn lýstur með örfáum kertaljósum svo úr varð hálfgerður ævintýraheimur.

Á þjóðhátíðardaginn okkar 17. júní héldum við óformlega tónleika á hóteli stutt frá þar sem við gistum. Gengum við þá fylktu liði með fána og sungum „Öxar við ána“ og vöktum töluverða athygli þeirra sem á vegi okkar urðu. Að sjálfsögðu tókum við svo lagið hér og þar okkur og öðrum til yndis og ánægju.

 Veðrið lék við okkur alla dagana og var það kærkomin tilbreyting frá rigningunni hér heima.

Heimasíða Kvennakórs Hafnarfjarðar er: http://www.kvennakorinn.org/joomla/

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra