Æfingar hjá Kvennakór Kópavogs eru að hefjast aftur eftir gott sumarfrí. Ýmislegt skemmtilegt er á dagskrá vetrar; Hönd í hönd, jólasöngur, æfingabúðir, vortónleikar...og síðast en ekkí síst, söngferð til Ítalíu!
Kórkonur eru að venju spenntar fyrir komandi vetri og vilja gjarnan fá fleiri söngkonur til liðs við sig, æfingar eru á þriðjudagskvöldum kl. 19:15-21:30.
Allar áhugasamar söngskvísur eru boðnar velkomnar á opna æfingu sem verður í Snælandsskóla 8. september kl. 19:15.
Við hlökkum til að sjá ykkur!