Vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar, sem haldnir voru í Kirkjuhvoli 6. og 7. maí, voru svo sannarlega með óhefðbundnu sniði. Efnisskrá tónleikanna var að þessu sinni í léttari kantinum en fyrir hlé söng kórinn erlend lög frá hinum ýmsu heimshornum auk kórlaga úr óperum og óperettum. Píanóleikari kvennakórsins Kristinn Örn Kristinsson studdi kórinn með sinni alkunnu snilld. Minni sönghópar kórkvenna sungu nokkur lög auk þess sem ein kórkona spilaði með Kristni Erni fjórhent á píanóið í einu verkanna. Í hléinu stóðu eiginmenn kórkvenna fyrir veitingasölu til styrktar kórstarfinu en margir gestanna þáðu að gæða sér á kók og prins.
Eftir hlé bættust landsþekktir jassleikarar í hópinn en það voru bræður Ingibjargar Guðjónsdóttur kórstjóra, þeir Ómar gítarleikari og Óskar saxófónleikari auk Tómasar R. Einarssonar kontrabassaleikara og Matthíasar M.D. Hemstock slagverksleikara. Úr þessu varð hinn magnaðasti bræðingur þar sem íslensk sönglög voru sett í nýjan og skemmtilegan búning við mikinn fögnuð áheyrenda en sem fyrr á tónleikum kvennakórsins var salurinn þéttsetinn á báðum tónleikunum.
Kvennakór Garðabæjar er langt því frá kominn í sumarfrí því nú er hópurinn á leið í upptökur fyrir væntanlegan geisladisk. Á glæsilegri heimasíðu kórsins, www.kvennakor.is má fræðast meira um þennan kraftmikla kór sem svo sannarlega hefur sett sinn svip á menningarlífið í Garðabæ undanfarin ár.