3. september hefjast mánaðarnámskeið í söng og nótnalestri fyrir byrjendur. Á námskeiðinu verða kennd grunnatriði í raddbeitingu; öndun, líkamsbeiting, raddæfingar og almenn sönglög. Einnig verða kynnt grunnatriði í tónfræði, tónheyrn, nótnalestri og takti. Námskeiðið verður á mánudögum og fimmtudögum kl. 18 og kostar kr. 40.000. Skráning fer fram hjá Ingveldi Ýr á netfanginu ingveldur(hjá)gmail.com