Kvennakór Garðabæjar heldur sína árlegu aðventutónleika mánudaginn 8. desember í Digraneskirkju og hefjast tónleikarnir kl. 20.00.
Að þessu sinni rennur allur ágóði af tónleikunum til Garðabæjardeildar Rauða krossins, í sérstakan sjóð fyrir aðstoð innanlands. Með þessu vill kórinn leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim fjölmörgu sem bágstaddir eru eftir að aðstæður breyttust skyndilega á haustdögum. Til þess að gera sem flestum kleift að sækja tónleikana er verði aðgöngumiða mjög í hóf stillt; 1500 kr. í forsölu og fyrir lífeyrisþega en 1800 kr. við inngang. Á móti er öllum kostnaði haldið í lágmarki og áherslan fyrst og fremst lögð á fagmennsku, fegurð og hátíðleika í flutningi tónlistar.
Efnisskráin er einkar geðþekk blanda af léttum, sígildum jólaperlum og hátíðlegri verkum. Af þeim fyrrnefndu má t.d. nefna Hin fyrstu jól Ingibjargar Þorbergs, sem að margra áliti er fegursta íslenska jólalagið, Yfir fannhvíta jörð sem Pálmi Gunnarsson gerði ódauðlegt um árið og Hvít jól sem í hugum fjölmargra er jólalag allra tíma. Af þeim síðarnefndu mætti nefna Gloriu eftir Antonio Vivaldi en hluti úr því undurfagra verki er á efnisskrá tónleikanna. Er þá fátt eitt talið af efnisskránni sem studd verður af lúðrablæstri og djasssveiflu. Síðast en ekki síst mun kórstjórinn Ingibjörg Guðjónsdóttir, ein af ágætustu sópransöngkonum landsins, syngja einsöng með kórnum.
Garðbæingar og aðrir eru hvattir til að fjölmenna á tónleikana og styrkja göfugt málefni en njóta um leið ljúfrar og hátíðlegrar tónlistar í amstri dagsins.
Forsölumiðar fást hjá kórkonum og einnig er tekið við pöntunum á kvennakor(hjá)kvennakor.is. Upplýsingar um Kvennakór Garðabæjar er að finna á heimsíðu kórsins: www.kvennakor.is