Frá haustinu 2003 hefur Kvennakór Akureyrar í samvinnu við aðra kóra og tónlistarmenn haldið aðventutónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar. Þar leggja allir sitt af mörkum og gefa vinnu sína til að styrkja gott málefni og rennur ágóðinn óskiptur til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar. Í ár verða haldnir veglegir tónleikar í Hamraborginni í Hofi. Þá fær kórinn til liðs við sig góða gesti, þau Guðrúnu Gunnarsdóttur söngkonu og Ívar Helgason, söngvara og leikara. Auk þess spila þeir Aladár Rácz á píanó, Pétur Ingólfsson á kontrabassa og Emil Þorri Emilsson á slagverk. Kórnum stjórnar að venju Daníel Þorsteinsson.
Efnisskráin er fjölbreytt, hugljúf, falleg og jólaleg. Kórinn mun m.a. syngja lag Daníels Þorsteinssonar við texta Önnu Dóru Gunnarsdóttur kórfélaga, sem hann samdi sérstaklega í tilefni af 10 ára afmæli kórsins á þessu ári.
Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styður vel við bakið á þeim fjölskyldum og einstaklingum sem eiga um sárt að binda og geta ekki haldið sín jól án stuðnings okkar hinna. Því er nauðsynlegt að allir taki höndum saman og hjálpi nefndinni við þetta göfuga starf. Fólk er því hvatt til að mæta og hlýða á fallega tóna í flottu og yndislegu umhverfi og styrkja um leið gott málefni.
Tónleikarnir verða haldnir í salnum Hamraborg í Menningarhúsinu Hofiá Akureyri fimmtudaginn 8. desember nk. og hefjast kl. 20:00. Miðaverð er 3000 krónur, en frítt fyrir 14 ára og yngri.
Nánari upplýsingar og miðasala er í Hofi og á vefsíðu Menningarhússins Hofs.