Kvennakór Breiðholts - Valkyrjurnar var stofnaður á síðasta ári og hafa þær sótt um inngöngu í Gígjuna, landssamband íslenskra kvennakóra en umsóknin verður tekin fyrir á næsta stjórnarfundi Gígjunnar. Má telja öruggt að umsóknin verði samþykkt.
Kvennakór Breiðholts er með eighties þema þetta árið og mun enda á vortónleikum þar sem á dagskránni verða bæði íslensk og erlend lög frá eighties áratugnum.
Kórinn vill hins vegar ekki binda sig endilega einvörðungu við dægurtónlist í framtíðinni og vill syngja allt á milli himins og jarðar, allt frá madrigölum upp í lög til dagsins í dag, sem sagt hafa frjálst lagaval.
Kórinn var stofnaður 25. maí 2011 og hóf síðan starfsemi í september. Ekki hefur skort verkefni, en kórinn hafði nóg að gera fyrir áramót;
Fyrstu tónleikar kórsins voru á Breiðholtsdögum þann 18. nóvember í Sundlaug Breiðholts á svokölluðu "Kvennasundi", þar sem þær komu fram með hljómsveit sem kallar sig "Sundhetturnar" úr Breiðholti.
Aðrir tónleikar sem þær sungu á voru einnig liður í Breiðholtsdögum og voru haldnir í Fella- og Hólakirkju þann 22. nóvember en það voru góðgerðartónleikar til styrktar Grensás, og sungu þær ásamt fleira góðu fólki svo sem Ragnari Bjarnasyni, Þorgeiri Ástvalds, Svavari Knúti, Karlakór Kjalnesinga, Gerðubergskórnum og fleira góðu listafólki.
Jólatónleikarnir Valkyrjanna voru síðan "Gleði og friðarjól" í Hallgrímskirkju þann 8.desember sem voru góðgerðartónleikar til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands og Rauða krossinum, en þar komu einnig fram hið vinsæla söngvaskáld Magnús Eiríksson, rappararnir Ástþór Óðinn og KFB, Vocal Project, Barnakór Háteigsskóla, Femmes fatales og Kammerkór Reykjavíkur.
Nú í vor þann 12. maí verða Valkyrjurnar með tónleika í Fella- og Hólakirkju kl. 17:00 þar sem kórinn mun flytja lög frá áttunda áratugnum eins og áður sagði, og fá óvænta góða gesti sér til liðs.
Kórinn verður með æfingabúðir á Hótel Hlíð 9. -11. mars, og æfir alla mánudaga í Hólabrekkuskóla kl. 17:30, en á æfingum hefur verið sungið af mikilli gleði, mikið hlegið og gaman í kaffipásum og jákvæður andi.
Það verða einnig nokkrar uppákomur sem kórinn hyggst halda, svo sem kaffitónleikar ásamt ýmsum upprennandi listamönnum, auk þess sem kórinn mun syngja á árshátíðum og einhverjum skemmtunum ma. í Breiðholti og víðar svo eitthvað sé nefnt.
Það er takmark hjá kórnum að fjölga meðlimum um helming fyrir vortónleika, og því bjóða þær hressar og söngvísar konur hjartanlega velkomnar í kórinn. Áhugasamar eru beðnar að hafa samband við Sesselju Barðdal í síma 863 3933, en eins má skrá sig á facebókarsíðu Valkyrjanna.
Kórstjóri er Kristín R. Sigurðardóttir en undirleikur er í höndum Elínar Halldórsdóttur.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs