Kvennakórinn Ljósbrá heldur sína árlegu vortónleika föstudaginn 27. apríl kl. 20:30 í Hvolnum á Hvolsvelli. Í ár eru tónleikarnir í fjörugari kantinum þar sem kórinn fær til liðs við sig Djassband Suðurlands ásamt einsöngvurunum Gísla Stefánssyni, Guðríði Júlíusdóttur og Margréti Hörpu Gunnsteinsdóttur. Dagskráin verður fjölbreytt með bæði íslenskum og erlendum lögum og mun rómantík og ást vera
aðalefni kvöldsins.