Freyjukórinn heldur vortónleikana "Mót sumri og sól" í Reykholtskirkju sunnudaginn 3. júní næstkomandi. Stjórnandi kórsins er Zsuzsanna Budai, undirleikarar verða Sigurður Jakobsson á bassa og Jónína Erna Arnardóttir leikur á píanó. Tónleikarnir eru liður í undirbúningi kórsins fyrir Ítalíuferð þar sem sungin verða bæði ítölsk og íslensk lög eins og Viva tutte, Ma come balli bella bimba, Vikivaki, Einu sinni á ágústkvöldi og fleira og fleira. Starf kórsins hefur verið með öflugra móti í vetur en eins og margir muna hélt Freyjukórinn söngbúðirnar Syngjandi konur á Vesturlandi þar sem djasssöngkonan Kristjana Stefáns leiddi hópinn. Söngbúðirnar voru kórnum eins og góð vítamínssprauta. Það iðar allt af lífi og óhætt að segja að það ríki gleði og kraftur í Freyjukórnum sem telur um 40 konur þetta árið. Það verður enginn svikinn af að mæta í Reykholt á sunnudaginn kemur kl. 20.30 og njóta með Freyjum Borgarfjarðar.