Það er óhætt að segja að mikið sé framundan í kór- og söngstarfi Kvennakórs Garðabæjar á næstu dögum og vikum. Fyrir utan hefðbundnar kóræfingar eru kórkonur að undirbúa árlega vortónleika kórsins auk undirbúnings vegna söngferðar í júní nk. til Bandaríkjanna og Kanada Nýafstaðið er velheppnað skemmti- og fjáröflunarkvöld kórsins sem bar heitið Skvísukvöld.
Skvísukvöldið var haldið sl. föstudagskvöld í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Uppselt var á skemmtunina enda gífurleg stemning hjá kórkonum að fylla salinn af flottum og hressum skvísum! Tekið var á móti konum með ljúfengum fordrykk og lifandi tónlist, flutta af ungum tónlistarnemum frá Tónskóla Eddu Borg og Tónskóla Sigursveins, þeim Erni á saxafón og Bjarna á rafmagnsgítar. Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum; Helga Braga, leikkona og uppistandari var með grín og glens og hélt salnum í hláturskasti, tónlistarmaðurinn Jón Jónsson heillaði ungar sem eldri með flottum söng og líflegri framkomu. Glæsileg tískusýning með fatnaði frá Begga Design og skóm frá verslun Rakelar Hafberg var í umsjón Eplis, hárstofu en veislustjórn var í höndum leiklistarnemans Katrínar Halldóru sem fór á kostum sem ofurskívsa kvöldsins. Síðast en ekki síst tók Kvennakór Garðabæjar nokkur lög og sló m.a. á létta strengi með lagi The Supremes „Stop in the name of love“ og kórstjórinn Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona söng af sinni alkunnu snilld nokkur létt lög við píanóleik Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Ekki má gleyma einstaklega ljúffengum veitingum sem komu frá Lystauka, veisluþjónustu sem er í eigu Garðbæingsins Sturlu Birgissonar, matreiðslumanns.
Næst á dagskrá kórsins eru árlegir vortónleikar þriðjudaginn 8. maí nk. í Hásölum, Hafnarfirði (sal Hafnarfjarðarkirkju) og hefjast þeir kl. 20. Efnisskrá tónleikanna er afar fjölbreytt að vanda en íslensk lög verða þó í öndvegi þetta vorið vegna söngferðarinnar. Hljóðfæraleikur er í höndum þeirra Bryndísar Björgvinsdóttur, sellóleikara, Svövu Bernharðsdóttur, víóluleikara og Sólveigar Önnu Jónsdóttur, píanóleikara. Forsala aðgöngumiða er hjá kórkonum og á kvennakor@kvennakor.is
Eftir vortónleika kórsins hefst formlegur undirbúningur fyrir söngferð kórsins til Bandaríkjanna og Kanada. Það ríkir mikil tilhlökkun hjá kórkonum og eiginmönnum fyrir ferðinni en flogið verður til Minneapolis þann 12. júní og ferðast um slóðir Vestur-Íslendinga í 10 daga með fararstjóra. Fyrir utan hefðbundið tónleikahald kórsins í ferðinni þá er óneitanlega hápunktur ferðalagsins þátttaka og söngur í hátíðahöldum á 17. júní í Winnipeg í Kanada.
Allar nánari upplýsingar um kórstarfið er á www.kvennakor.is og á facebooksíðu kórsins.