Kyrjurnar eru búnar að hafa í nóg að snúast á þessari önn. Þær hófu æfingar snemma á nýju ári og skelltu sér í æfingarbúðir í febrúar. Þær eru einnig á fullu að undirbúa ferð sína á landsmótið á Hornafirði sem verður um næstu helgi. Vortónleikar Kyrjanna verða í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 17. maí kl. 17. Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdótir og píanóleikari er Halldóra Aradóttir. Miðar verða seldir í forsölu hjá kórkonum á kr. 1500. Miðasala verður einnig við innganginn, almennt verð 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Einnig er hægt að panta miða með því að hringja í símanúmerið: 891 7449. Lesið nánar um starfsemi Kyrjanna í þessari frétt.
Hér eru nokkrir fréttapunktar frá Kyrjunum
Kyrjurnar byrjuðum að æfa fyrir vorið strax í upphafi nýs árs eða 9. janúar. Við höfum fyrst og fremst verið að vinna í tónlistinni sem við munum flytja á vortónleikunum okkar. Að sjálfsögðu höfum við líka verið að vinna í lögunum sem eru sameiginleg á kóramótinu á Höfn í Hornafirði. Við fórum í æfingabúðir á Hótel Eldhesta sem er rétt austan við Hveragerði helgina 16. 17. febrúar. Þar var fín aðstaða og unnum við vel og gerðum okkur að sjálfsögðu glaðan dag líka. Í mars skellti hluti kórsins sér í Íslensku óperuna til sjá La Traviata og skemmti sér vel. Nú styttist í kóramótið á Höfn sem við ætlum að taka þátt í og er komin heilmikil tilhlökkun í okkur. Svo síðast en ekki síst þá verða vortónleikarnir okkar í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 17. maí kl. 17. Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdótir og píanóleikari er Halldóra Aradóttir sem jafnframt hefur útsett lög fyrir okkur. Yfirskrift þessara tónleika verður Kímni og konfekt. Miðar verða seldir í forsölu hjá kórkonum á kr. 1500. Miðasala verður einnig við innganginn, almennt verð 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Einnig er hægt að panta miða með því að hringja í símanúmerið: 891 7449. Börn 12 ára og yngri fá frítt inn.