Barna og kvennakórstjóranámskeið á vegum söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar og Skálholtskóla verður haldið í Skálholti dagana 13. - 16. ágúst 2009
Árið 1809, fyrir 200 árum, lést Joseph Haydn. Sama ár fæddist annað merkt tónskáld, Felix Mendelsohn Bartholdy. Þessara sígildu meistara verður minnst bæði í verkefnaskrá og kynningum á kórstjóranámskeiði í Skálholti.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða þær Sibyl Urbancic og Margrét J. Pálmadóttir.
Sibyl verður með þríradda sálma Haydns, samda í Englandi á síðasta áratug 18. aldar við enska texta (“Improved Psalmody”), á verkefnaskrá sinni. Þar að auki bænir eftir Giacinto Celsi (1905-1988), einradda við latneskan texta, og “Allelujah-Super-Round” eftir William Albright (1944-1998), svo og gregoríanska söngva. Samhliða vinnu við þessi tónverk ætlar hún að leiðbeina þátttakendum í spuna, sérstaklega í tengslum við kirkjulega texta. Með þessu verkefnavali vill Sibyl benda á leiðir til að flytja kirkjusöng óháð fjölda söngvara og raddskipan. Í kynningartíma sínum mun hún koma með dæmi kirkjulegrar tónlistar úr ýmsum áttum fyrir sópran- og altraddir til að leyfa þátttakendum að spreyta sig á.
Margrét verður fyrirlestra sem hún kallar “Kærleikskeðjur í hug- og raunrými” en þar vinnur hún með spunnar, þekktar og óþekktar keðjur í hómó og pólýrytmum. Einnig verður hún með nýtt og spennandi efni í farteskinu til að kynna fyrir þátttakendum. Í för með Margréti verður góður hópur söngkvenna, nokkurs konar æfingakór sem þátttakendur fá tækifæri á að stjórna.
Dagskrá námskeiðsins:
Fimmtudagur 13. ágúst
Kl. 14-16 Skráning þátttakenda
Kl. 16 Setning námskeiðs og kynning á námsgögnum
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 20-21.30 Kvöldvaka í umsjón Margrétar og hennar kvenna.
Föstudagur 14. ágúst
Kl. 8 Morgunverður
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.30 Sibyl
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 13-14.30 Margrét Pálma. – Kærleikskeðjur í hug- og raunrými
Kl. 15-16 Kynning á nýju efni
Kl. 16 Kaffi
Kl. 16.30-18 Sibyl - Kórstjórn
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 20-21.30 Kvöldvaka í umsjón Margrétar og hennar kvenna.
Laugardagur 15. ágúst
Kl. 8 Morgunverður
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.30 Sibyl
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 13-14.30 Margrét Pálma. – Kærleikskeðjur í hug- og raunrými
Kl. 15-16 Kynning á nýju efni
Kl. 16 Kaffi
Kl. 16.30-18 Sibyl - Kórstjórn
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 20-21.30 Kvöldvaka í umsjón Margrétar og hennar kvenna.
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 9 Morgunverður
Kl. 10.30 Æfing fyrir messu þar sem barnakór og þátttakendur í námskeiðinu sjá um tónlistina
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 14 Messa
Kl. 15.30 Messukaffi - Námskeiðslok.
Dagskrá þessi er birt með fyrirvara um breytingar.
Verð fyrir fæði og gistingu í Skálholtsskóla í 3 sólarhringa: kr. 26.000,-
Þátttökugjald er kr. 15.000,- (innifalið er kennsla, kennslugögn o.fl.).
Skráning fer fram hjá Arngerði í síma 856 1597 eða á netfangið arngerdur.arnardottir(hjá)kirkjan.is
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2009 en hámarksfjöldi þátttakenda er 30.
Staðfestingargjald kr. 10.000,- greiðist við skráningu eða eigi síðar en 10. júní.
Ljúka þarf síðan við að greiða fyrir námskeiðið að fullu fyrir 1. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur Arngerður María í síma 856 1597 eða á netfangið: arngerdur.arnardottir(hjá)kirkjan.is
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs