Kvennakórinn Ymur verður með kaffihúsatónleika miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20 í Vinaminni á Akranesi. Kaffihúsakvöldin eru árlegur viðburður í starfsemi kórsins og hafa mælst mjög svo vel fyrir. Auk þess að búa yfir fagurri söngrödd er hver ein söngkona Yms afar liðtæk þegar kemur að bakstri og kökuskreytingum og eru afurðirnar svo mikilfenglegar að unun er á að líta. Gegn hóflegu gjaldi fá gestir kaffihúsakvöldsins að hlýða á fagra tóna Kvennakórsins Yms um leið og þeir gæða sér á kaffi og veitingum af glæsilegu kökuhlaðborði kórkvenna í notalegu umhverfi. Auk Kvennakórsins Yms undir stjórn Sigríðar Elliðadóttur koma fram trúbadorarnir Geir Harðarson og Héðinn R. Jónsson þeir munu báðir flytja eigin efni. Miðaverð er kr. 1500 kr. fyrir frábæra söngskemmtum og veitingar.Kvennakórinn Ymur frá Akranesi
Kvennakórinn Ymur kemur frá Akranesi og var stofnaður 31. janúar árið 1995 og hefur starfað óslitið síðan. Þrír stjórnendur hafa fylgt kórnum frá upphafi. Dóra Líndal Hjartardóttir stjórnaði kórnum fyrstu sjö árin. Í júlí 2001 tók Elfa Margrét Ingvadóttir við og starfaði í fjögur ár. Sigríður Elliðadóttir hefur svo stjórnað kórnum síðustu tvö árin. Ymur heldur venjulega tvenna tónleika á ári, ýmist heima eða að heiman. Kórinn hefur þrisvar farið á Landsmót Kvennakóra, í Reykholt, Keflavík og Hafnarfjörð. Kórinn hefur einnig farið á Norrænt Kvennakóramót sem haldið var í Reykjavík árið 2000. Ymur hefur lagt land undir fót og brá sér til Færeyja 1997, til Póllands 2001 með viðkomu í Kaupmannahöfn og svo til Skotlands í ágúst 2004 þar sem meðal annars var sungið í Urquhartkastala á heimaslóðum Loch Ness skrímslisins. Árið 2005 gaf kórinn út geisladisk sem bar nafnið Ymur og var tekinn upp í Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd. Á disknum er m.a. að finna íslensk þjóðlög og gospel.