Kvennakórinn Ymur og Grundartangakórinn halda jólatónleika í safnaðarheimilinu Vinaminni við Skólabraut á Akranesi miðvikudaginn 10. desember kl. 20:00.
Einsöngvari er Smári Vífilsson. Stjórnendur eru Sigríður Elliðadóttir og Atli Guðlaugsson. Birgir Þórisson og Flosi Einarsson leika á píanó.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. Enginn posi verður á staðnum.