Í tilefni 85 ára afmælis Ingibjargar Þorbergs verður boðið til veislu í Salnum 25. október og hefst hún kl. 18:00.
Ingibjörg er bæði þekkt sem tónskáld og textahöfundur og ættu allir að getað raulað lögin hennar eins og til dæmis Aravísur, sem er eitt ástsælasta barnalag Íslands. Í tilefni afmælis hennar verður boðið til veislu í Salnum. Þar munu lög hennar hljóma í flutningi margra okkar færustu tónlistarmanna.
Meðal flytjenda á þessum tónleikum verða bæði Kvennakór Reykjavíkur og Kvennakór Kópavogs.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
http://www.salurinn.is/midasala-og-dagskra/vidburdir-framundan/nr/105