Hjartans hörpustrengir er yfirskrift glæsilegra aðventutónleika kóra Margrétar J. Pálmadóttur sem haldnir verða í Langholtskirkju laugardaginn 29. nóvember. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14.00 og síðari kl. 16.30.
Á tónleikunum koma fram rúmlega 200 söngkonur á öllum aldri úr Stúlknakór Reykjavíkur og kvennakórunum Gospelsystrum Reykjavíkur og Vox feminae og munu þær flytja margar af okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum.
Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir. Einsöngvari með kórunum er Sigrún Hjálmtýsdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir leikur á þverflautu, Hjörleifur Valsson á fiðlu, Monika Abendroth á hörpu, Þorkell Jóelsson og Emil Friðfinnsson leika á horn og Antonia Hevesi leikur á orgel.
Miðaverð er kr. 2.500 í forsölu og kr 3.000 við innganginn. Forsala aðgöngumiða er hjá kórfélögum og í Domus Vox, Laugavegi 116, mánudaga til fimmtudaga kl. 14-18 sími 511 3737 og alla daga í síma 893 8060.