Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar verða mánudagskvöldið 3. desember nk. kl. 20 í Digraneskirkju, Kópavogi.
Að vanda verður efnisskrá tónleikanna einkar fjölbreytt og hátíðleg og ættu mörg þekkt jólalög að koma tónleikagestum í sannkallaða jólastemningu.
Sérstakur gestur verður Ármann Helgason, klarínettuleikari en kórstjóri er Ingibjörg Guðjónsdóttir og píanóleikari Sólveig Anna Jónsdóttir.
Forsala aðgöngumiða er hjá kórkonum og á netfangi kórsins. Miðaverð í forsölu er 2000 kr. og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu kórsins og á facebook.