Síðasta fimmtudag hittust konur úr Kvennakór Hornafjarðar ásamt mökum sínum í Golfskálanum á Höfn. Tilgangur þessarar samkundu var einna helst sá að hrista fólk saman, borða góðar veitingar, hlæja mikið og koma körlunum í skilning um það hvað þeir eigi að vera að gera helgina 25. 27. apríl næst komandi þegar 7. landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra verður haldið á Hornafirði. Við bíðum nú bara öll spennt eftir því að hitta kórkonur allstaðar af landinu hér á Höfn. Verið velkomin til Hafnar í apríl.