Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur heldur sína sívinsælu aðventutónleika í Langholtskirkju fimmtudaginn 6. desember kl. 20.00 og laugardaginn 8. desember kl. 16.00. Einsöngvari er Hulda Björk Garðarsdóttir en hún hefur komið fram á fjölda tónleika bæði hérlendis og erlendis. Á dagskránni verða gömul og ný jólalög.
Hljómsveitina skipa Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari og hljómsveitarstjóri, Kjartan Guðnason trommuleikari og Tómas R. Einarsson bassaleikari.
Miðaverð er 2.800 krónur og miðasala er í síma 897-1885, á lettsveit@lettsveit.is og meðal kórkvenna.