Hornfirsku Dívurnar eru mæta í sínu fínasta pússi.
Árlegir jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir í Nýheimum miðvikudaginn 10. desember, kl 20.
Efnisskráin er að vanda fjölbreytt, létt og leikandi. Ýmsir listamenn koma fram með kórnum. Stjórnandi kórsins er Jóhann Morávek og undirleikari er Jónína Einarsdóttir.
Að venju er boðið upp á dýrlegt kaffihlaðborð sem svignar undan tertum, brauðréttum og fleiri gómsætum réttum.
Miðaverð er kr. 2000 á mann en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Á tónleikunum verður einnig hægt að verða sér úti um hin frábæru dagatöl kvennakórskvenna sem eru einmitt svo góð í jólapakkann.