Í tilefni af 20 ára afmæli Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir hátíðartónleikar, „Frá konu til konu“ í Eldborgarsal Hörpu,sunnudaginn 7.apríl kl 15, þar sem að koma allir kórar sem starfað hafa undir merkjum Kvennakórs Reykjavíkur.
Þetta verður fjölmennasti flytjendahópur til þessa á sviðinu í Eldborg eða um 420 konur.
Kórarnir eru:
Kvennakór Reykjavíkur, stjórnandi Ágota Joó
Vox feminae, stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir
Stúlknakór Reykjavíkur, stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir
Léttsveit Reykjavíkur, stjórnandi Gísli Magna
Senjorítur, stjórnandi Ágota Joó
Cantabile,stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir
Kórarnir munu syngja hver fyrir sig tónlist af ýmsum toga. Einnig munu kórarnir syngja saman og ber þar hæst lag eftir Þóru Marteinsdóttur, „Breyttur söngur" sem hún samdi við ljóð Huldu, í tilefni af 10 ára afmæli Gígjunnar. Einnig verður flutt tónlist eftir gömlu meistarana og ung íslensk tónskáld svo eitthvað sé nefnt.
Miðaverð er 4.800 kr / 3.800 kr / 2.800 kr og er miðasala á midi.is og harpa.is