Aðalfundur Gígjunnar verður haldinn laugardaginn 1. október 2016 í söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116 Reykjavík kl. 15:30.
Formannafundur verður haldinn kl. 13:00.
Stjórn Gígjunnar vonast til að sjá fulltrúa frá sem flestum aðildarkórum.
Dagskrá aðalfundar
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar
3. Umræða um skýrslu og reikninga
4. Tillögur og lagabreytingar
5. Ákvörðun árgjalds
6. Kosning formanns
7. Kosning stjórnar og varamanna
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
9. Önnur mál
Lagabreytingar og aðrar tillögur frá aðildakórunum skulu berast stjórn eigi síðan en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Aðildakórar Gígjunnar eru hvattir til þess að senda formann og stjórnir sínar á fundinn. Við viljum vekja athygli á að hver kór getur sent eins marga fulltrúa og hann vill á fundinn. Tveir fulltrúar hvers aðildarkórs hafa atkvæðisrétt á aðalfund samkvæmt lögum Gígjunnar.
Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína.
Aðildarkórar eru einnig hvattir til að koma með tillögur að lagabreytingum. Breytingartillögur þurfa að berast eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn þannig að hægt sé að kynna þær fyrir öðrum kórum með tölvupósti. Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á netfangið gigjan2003@gmail.com fyrir laugardaginn 17. september.