Salka kvennakór á Dalvík leitar að nýjum kórstjóra fyrir veturinn en Margot Kiis sem hefur stjórnað kórnum undanfarin ár er á leið til Noregs. Salka var stofnuð árið 2008 og hefur sérhæft sig í flutningi dægurlaga í léttum djössuðum útsetningum.
Kórkonur leita að hressum, ákveðnum og skapandi stjórnanda. Þær bjóða söngglaðan hóp kvenna sem er tilbúinn að takast á við spennandi ný verkefni.
Upplýsingar um starfið gefur Guðrún Inga formaður í síma 865-1983. Einnig má senda fyrirspurn á netfang kórsins.