Kvennakórinn hélt sína árlegu vortónleika í Kaldalónssal Hörpu laugardaginn 15. mars. Tvennir tónleikar voru sungnir þennan dag og var nánast húsfyllir í bæði skiptin. Tónleikarnir heppnuðust með miklum ágætum og það voru glaðir gestir sem yfirgáfu Hörpu að þeim loknum. Um hljóðfæraleik sáu Birgir Bragason á bassa og Árni Heiðar Karlsson á píanó. Dagný Þórólfsdóttir formaður kórsins bauð gesti velkomna en kórstjórinn Gróa Hreinsdóttir kynnti dagskrána. Skemmti hún gestum á milli laga með áhugaverðum sögubrotum um bakgrunn þeirra og textanna. Þetta voru síðustu tónleikar Gróu með kórnum en hún hyggst hverfa til annarra starfa þegar þessari önn líkur.
Vönduð umgjörð
Eins og komið hefur fram stóð dagskrá tónleikanna saman af amerískum dægurlagaperlum frá tímanum fyrir miðja síðustu öld og alveg fram á áttunda áratuginn. Kórkonur lögðu mikinn metnað í að öll umgjörð bæri svip af lagavalinu og klæddust kjólum í stíl við tilefnið. Nemar úr Hársnyrtiskóla Tækniskólans sáu um hárgreiðslu og tveir nemar í ljósmyndun mynduðu það sem fyrir augu bar. Eru kórkonur afar þakklátar þessu unga og efnilega fólki fyrir hjálpina.
Óvænt uppákoma
Á seinni tónleikunum brá svo við rétt fyrir hlé að kórstjóri vék píanóleikara frá hljóðfærinu. Kom þá nokkur undrunarsvipur á kórinn og minnkaði ekki við forspil sem engin kórkvenna kannaðist við. Sagt er að áhorfendur hafi haldið að kórkonur væru þarna að vinna leiksigur en undrunin var ósvikin og fögnuður braust út þegar karlakór gekk syngjandi í salinn. Þar var þá kominn Karlakór Grindavíkur sem Gróa stjórnar en hún hafði plottað með þeim á bak við Kvennakórinn þessa skemmtilegu uppákomu. Höfðu kórkonur mikið gaman af.
Hlakka til að mæta á Landsmót kvennakóra
En þó þetta hafi verið síðustu tónleikar með Gróu kórstjóra er ekki allt búið enn því 9. - 11. maí er stefnan tekin á Landsmót kvennakóra sem í þetta sinn er haldið á Akureyri. Það verður myndarlegur hópur sem fer með Gróu á landsmótið eða ríflega 40 konur og er mikil tilhlökkun í hópnum að hitta aðra kvennakóra.