Kvennakór Öldutúns heldur jólatónleika í samstarfi við Kór Öldutúnsskóla, sunnudaginn 9. desember kl. 16.00 í Hafnarfjarðarkirkju. Á dagskránni eru lög úr Ceremony of Carols og jólaperlur úr ýmsum áttum. Sérstakir gestir verða Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth. Stjórnandi er Brynhildur Auðbjargardóttir.
Miðaverð er 3000 kr. en 2500 kr. í forsölu hjá flytjendum.