Rokk og rómantík er yfirskrift tónleikanna hjá Kvennakór Kópavogs sem haldnir verða í Hörðuvallaskóla í Kópavogi þriðjudaginn 17. maí n.k. klukkan 20. Boðið verður upp á rómantísk lög í bland við þekkta rokkslagara. Miðaverð verður aðeins 1500 krónur og hægt verður að kaupa þá í forsölu með því að senda tölvupóst á miðasölu kórsins. Einnig verða seldir miðar við innganginn. Ókeypis aðgangur verður fyrir börn yngri en 12 ára. Stjórnandi kórsins er Julian M. Hewlett og undirleikari er Helgi Már Hannesson.
Kvennakór Kópavogs hefur haft nóg að gera á þessu níunda starfsári sínu. Í mars var farið í æfingabúðir austur fyrir fjall og dvöldu kórkonur þar heila helgi við söng og leik. Kórinn sendi fulltrúa sína á Landsmót kvennakóra á Selfossi, sem haldið var í byrjun maí, en þar komu saman yfir 600 konur víðsvegar að af landinu. Starfi Kvennakórs Kópavogs þetta árið lýkur svo í júní með söngferðalagi. Stefnan er tekin á Leeds á Englandi en ætlunin er að heimsækja vinakór sem heitir Goods in Parts.
Kvennakór Kópavogs stendur á tímamótum. Kórfélagar kveðja í vor, með söknuði, stjórnanda kórsins Julian Hewlett en hann hefur fylgt kórnum frá stofnun fyrst sem undirleikari en sem stjórnandi frá haustinu 2009. Við þökkum Julian fyrir vináttu og frábær störf með Kvennakór Kópavogs .
Framundan er tíunda starfsár Kvennakórs Kópavogs sem haldið verður upp á með veglegum hætti. Mikil gleði og bjartsýni ríkir í Kvennakór Kópavogs og horfa kórkonur kátar fram á næsta áratug.