Kvennakórinn Ljósbrá heldur tónleika í Selfosskirkju á uppstigningardag 25. maí kl. 20.30. Stjórnandi kórsins er Eyrún Jónasdóttir og undirleikari er Ester Ólafsdóttir. Einnig spilar Margrét Harpa Guðsteinsdóttir á þverflautu. Einsöngvarar með kórnum eru þær Berglind Gylfadóttir og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Báru Grímsdóttur, Sigurð Þórðarsson og Sigfús Halldórsson. Miðar eru seldir við innganginn og kosta kr. 1500, frítt fyrir 14 ára og yngri, öryrkjar- og ellilífeyrisþegar greiða kr. 1200.Fréttatilkynning frá Kvennakórnum Ljósbrá
Kvennakórinn Ljósbrá í Rangárvallasýslu syngur tónleika í Selfosskirkju og heldur síðan í sína fyrstu söngferð til Austurríkis í lok maí. Fimmtudaginn 25. maí heldur Kvennakórinn Ljósbrá tónleika í Selfosskirkju kl. 20.30. Dagskráin er fjölbreytt en þótti kórnum við hæfi að efnisskráin væri að miklu leyti íslensk þar sem kórinn er að leggja upp í söngferð til Austurríkis 31. maí. Kórstjóri er Eyrún Jónasdóttir, einsöngvarar með kórnum eru þær Berglind Gylfadóttir og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir. Undirleikari er Ester Ólafsdóttir. Síðastliðið vor var ákveðið að kórinn færi í söngferðalag til Austurríkis og nú er komið að því. Æfingar hafa staðið yfir í allan vetur og hafa aldrei verið fleiri konur í kórnum en nú eða um 42 samtals. Kórinn kynnir sig gjarnan sem stúlknakór því kórmeðlimir eru stúlkur á aldrinum 18 - 70 ára! Fyrst mun kórinn hefja upp raust sína í Saltzburg. Kórstjóri kórsins, Eyrún Jónasdóttir, lagði stund á söngnám í Saltzburg og er því öllum hnútum kunnug þar. Þar munum kórinn syngja á strætum, görðum, torgum og þar sem því verður við komið. Þaðan liggur leiðin til Vínarborgar og mun kórinn syngja í kirkju sem heitir Votivkirche. Bad Gasten er lítið þorp í Ölpunum, þar mun kórinn einnig halda tónleika. Í vetur hefur kórinn gert ýmislegt til fjáröflunar t.d. haldiið bingó, bögglauppboð, kökubasara, farið með varning í Kolaportið, selt boli og kaffi á æfingum svo fátt eitt sé talið. Þessi dugnaður kórkvenna gerir það að verkum að kostnaður við utanlandsferðina er í lágmarki. Kvennakórinn Ljósbrá