Nýjast kórinn í Gígjunni landssambandi íslenskra kvennakóra er Kvennakórinn Heklurnar í Mosfellsbæ. Þær sóttu um aðild að Gígjunni 28. febrúar 2007 og á síðasta aðalfundi 10. mars voru þær boðnar formlega velkomnar í Gígjuna. Á fundinum var Kristín Pálsdóttir með greinargóða kynningu á starfsemi kórsins. Heklur hjartanlega velkomar í Gígjuna.Kór sem skemmtir sér og bloggar !
Skemmtanir sem eru fastir liðir er Heklureiðin sem er farin frá hesthúsahverfinu í Mosfellsbæ, yfirleitt um miðjan maí, heim til einnar kórkonunnar, Báru Guðjónsdóttur upp á Kjalarnes, þar sem við þiggjum veitingar og ríðum svo til baka. Í ágúst förum við í boði Rannveigar Gísladóttur, sem er alt eins og Bára, í siglingu um sundin blá á skútunni hennar Rannveigar. Áætlað var að fara í utanlandsferð í ár en ekki fékkst næg þátttaka enda þurfa konurnar að borga slíka ferð sjálfar, tekst þó vonandi á næsta ári. Heklunar kvennakór halda úti bloggsíðu þar sem upplýsingar um kórstarfið og fleira eru aðgengilegar. Þar er líka reynt að safna tenglum á ýmislegt er varðar kórstarf, tónfræði og tónlist. http://blog.central.is/heklurnar Að lokum er gaman að nefna að Heklurnar hafa látið útsetja tvö ný íslensk lög fyrir sig. Lögin og textarnir eru bæði eftir Ólínu Gunnlaugsdóttur söngvaskáld á Hellnum á Snæfellsnesi og heita Una og Sumarást en Valentina Kay útsetti lögin. ___________________________ Nánari upplýsingar um Heklurnar er að finna hér á vefsetrinu undir linknum Aðildarkórar.
Nýjast kórinn í Gígjunni landssambandi íslenskra kvennakóra er Kvennakórinn Heklurnar í Mosfellsbæ. Þær sóttu um aðild að Gígjunni 28. febrúar 2007 og á síðasta aðalfundi 10. mars voru þær boðnar formlega velkomnar í Gígjuna. Á fundinum var Kristín Pálsdóttir með greinargóða kynningu á starfsemi kórsins. Heklur hjartanlega velkomar í Gígjuna.Kórinn sem bakar ekki !
Markmið starfseminnar eru að halda úti kórstarfi þar sem aðaláherslan er á að syngja saman og allur félagslegur þrýstingur vegna annarrar starfsemi því óheimill. Í lögum kórsins stendur meðal annars: Fjáröflunarstarfsemi sem felst í sölu á t.d. rækjum, salernispappír og berjatínum er andstæð tilgangi félagsins sem og kökusala á bösurum eða hliðstæðum viðburðum. Af sjálfu sér leiðir að fjárhagur kórsins er naumari en þeirra kóra sem stunda fjáraflanir. Því er þess gætt að fjármunir séu eingöngu notaðir í það allra nauðsynlegasta sem tengist söngnum beint eins og undirleik, raddþjálfun og kórbúðir svo að hægt sé að halda kórgjöldum í lágmarki. Nú, í mars 2007, eru um 20 konur virkar í kórnum, flestar úr Mosfellsbæ en líka úr Árbæ, Grafarvogi og víðar að. Æfingar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20.00 í sal Varmárskóla. Til að æfingarnar nýtist betur höfum við reynt að senda sem mest af lögunum sem við erum að syngja á tölvutæku formi til hlustunar á kórinn, hverja rödd fyrir sig. Forritið Noteworthy (http://www.noteworthysoftware.com/composer/evaluate.htm) er notað til að slá lögin inn en þau eru líka send sem .mid (MediaPlayer) skjöl og er hægt að hlusta á þau í flestum hlustunarforritum. Kórinn fer í æfingarbúðir einu sinni á ári, yfirleitt í mars. Kórinn heldur vortónleika og æfir jólaprógramm sem flutt er fyrir eldri borgara, inni á spítölum, niðri á Skólavörðustíg og víðar. Árin 2004 og 2005 héldum við metnaðarfulla jólatónleika með fleiri flytjendum fyrst í Háteigskirkju og síðan í Langholtskirkju. Í október 2006 tókum við þátt í tónleikum með öllum kórum í Mosfellsbæ og Sinfóníuhljómsveit Íslands í tilefni af 40 ára afmæli Tónlistarskóla Mosfellsbæjar.
Nýjast kórinn í Gígjunni landssambandi íslenskra kvennakóra er Kvennakórinn Heklurnar í Mosfellsbæ. Þær sóttu um aðild að Gígjunni 28. febrúar 2007 og á síðasta aðalfundi 10. mars voru þær boðnar formlega velkomnar í Gígjuna. Á fundinum var Kristín Pálsdóttir með greinargóða kynningu á starfsemi kórsins. Heklur hjartanlega velkomar í Gígjuna.Kvennakórinn Heklurnar
Kvennakórinn Heklurnar var stofnaður í janúar árið 2003. Kórinn var stofnaður af nokkrum konum, nánar tiltekið sex, sem höfðu áhuga á söng en treystu sér ekki til að taka þátt í venjulegu kórstarfi þar sem oft er mikil áhersla á félagsstarf og fjáraflanir. Stofnendur kórsins höfðu frá árinu 1999 hittst í hádeginu á föstudögum í söngtímum í Ými hjá Björku Jónsdóttur. Vegna breytinga á persónulegum högum og einnig vegna skorts á áþreifanlegum árangri söngstarfsins lagðist söngiðkunin af vorið 2002. Um áramót var söngþörfin orðin það mikil að ákveðið var að athuga með undirtektir við stofnun kvennakórs í Mosfellsbæ, þar sem við búum flestar. Björk var til í að stjórna okkur og á fyrstu æfingu mættu um 15 konur. Kristín I. Pálsdóttir skipaði sjálfa sig formann kórsins og var það fram á vor 2005 þegar núverandi formaður Erla Þorbjörnsdóttir tók við.