• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Húsfyllir á vel heppnaðri Haustvöku Kvennakórs Garðabæjar í Kirkjuhvoli

Húsfyllir á vel heppnaðri Haustvöku Kvennakórs Garðabæjar í Kirkjuhvoli

16. október 2007
Kvennakór Garðabæjar og menningar- og safnanefnd bæjarins stóðu saman að Haustvöku í Kirkjuhvoli 11. október. Haustvakan er hluti af þriggja ára samstarfssamningi sem kórinn gerði við Garðabæ síðastliðið ár en þetta er í sjöunda sinn sem kvennakórinn býður upp á þessa miklu menningarhátíð. Haustvakan hefur frá upphafi verið vel sótt og heppnast prýðilega og var engin undantekning þar á nú í ár, salurinn var fullsetinn og mikil stemmning í mannskapnum. Á boðstólum voru léttar veitingar að hætti kórkvenna og skapaðist sannkölluð kaffihúsastemmning í salnum sem var fagurlega skreyttur af kórkonum í tilefni kvöldsins.Fréttatilkynning frá Kvennakór Garðabæjar
Kvennakór Garðabæjar og menningar- og safnanefnd bæjarins stóðu saman að Haustvöku í Kirkjuhvoli 11. október. Haustvakan er hluti af þriggja ára samstarfssamningi sem kórinn gerði við Garðabæ síðast liðið ár en þetta er í sjöunda sinn sem kvennakórinn býður upp á þessa miklu menningarhátíð. Haustvakan hefur frá upphafi verið vel sótt og heppnast prýðilega og var engin undantekning þar á nú í ár, salurinn var fullsetinn og mikil stemmning í mannskapnum. Á boðstólum voru léttar veitingar að hætti kórkvenna og skapaðist sannkölluð kaffihúsastemmning í salnum sem var fagurlega skreyttur af kórkonum í tilefni kvöldsins. Venja er á Haustvöku að bjóða bæjarbúum upp á það besta sem býðst í menningarlífi Garðabæjar hverju sinni. Hefð er komin fyrir því að Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur haldi utan um dagskrána og gerði hún það með glæsibrag líkt og áður. Einnig hefur skapast sú hefð að bæjarlistamaður Garðabæjar komi fram og í ár var það Karl Ágúst Úlfsson leikari sem las gestum pistilinn. Karlmennskan var inntak frásagnar Karls Ágústs en hann taldi það nauðsynlegt til að skapa smá mótvægi við allan kvennafansinn sem heilum kvennakór fylgir. Frá upphafi hefur það verið eitt af markmiðum Haustvökunnar að leyfa unga listafólkinu í bænum að njóta sín og er það meðal annars gert með samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar. Glæsilegur fulltrúi skólans að þessu sinni var Berglind Bergmann nemandi í píanóleik en hún lék listilega vel fyrir gesti og verður gaman að fylgjast með þessari ungu konu í framtíðinni. Ekki síður glæsilegar voru Alma Guðmundsdóttir og Klara Ósk Elíasdóttir úr sönghópnum Nylon en þær sungu nokkur lög við píanóleik Kristjáns Sturlu Bjarnasonar nemanda í FÍH. Þær stöllur fengu aukna breidd í aðdáendahópinn sinn með því að sýna á sér nýja hlið með látlausum, yfirveguðum og órafmögnuðum flutningi. Þess má til gamans geta að Alma á móður og systur í Kvennakór Garðabæjar og bróðir hennar er höfundur tónverks sem kórinn hyggst flytja á tónleikum í Kaupmannahöfn 27. október. Kvennakór Garðabæjar tróð að sjálfsögðu upp undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur við píanóleik Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem starfar með kórnum um þessar mundir. Efnisskráin stóð að mestu af íslenskum sönglögum við ljóð Jónasar Hallgrímssonar í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli skáldsins og verða þau einnig flutt í söngferð kórsins til Kaupmannahafnar 25.-28. október. Kvennakór Garðabæjar heldur uppi glæsilegri heimasíðu, http://www.kvennakor.is/ þar sem lesa má um starfsemi kórsins. Þar má m.a. finna uppskriftina að döðlukonfektinu sem var meðal veitinga á kvöldinu og vakti þvílíka lukku meðal gestanna. Endilega kíkið á síðuna og lesið meira um þennan kraftmikla kór sem svo sannarlega hefur sett svip sinn á menningarlíf Garðabæjar frá stofnun hans, árið 2000.

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra