• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Kvennakór Garðabæjar dvaldi í vel heppnuðum æfingabúðum í Skálholti

Kvennakór Garðabæjar dvaldi í vel heppnuðum æfingabúðum í Skálholti

13. febrúar 2007
Kvennakór Garðabæjar fór í sínar árlegu æfingabúðir helgina 10.–11. febrúar. Líkt og undanfarin tvö ár var farið í Skálholt í Biskupstungum. Veðrið var dásamlegt, logn og glampandi sólskin, svo kórkonur fengu að njóta fegurðar þessa sögufræga staðar til fullnustu.Kvennakór Garðabæjar heldur kökubasar á Garðatorgi 10. mars
Sem fyrr er allt á fullu hjá Kvennakór Garðabæjar og ýmis verkefni framundan. Við hvetjum áhugasama til að fylgjast með starfinu á glæsilegri heimasíðu kórsins, www.kvennakor.is og minnum á næsta kökubasar sem verður haldinn á Garðatorgi 10. mars 2007.
Kvennakór Garðabæjar fór í sínar árlegu æfingabúðir helgina 10.–11. febrúar. Líkt og undanfarin tvö ár var farið í Skálholt í Biskupstungum. Veðrið var dásamlegt, logn og glampandi sólskin, svo kórkonur fengu að njóta fegurðar þessa sögufræga staðar til fullnustu.Fréttatilkynning frá Kvennakór Garðabæjar
Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá snúast æfingabúðir sem þessar aðallega um tvennt. Annars vegar að auka færni kórsins í söngverkum annarinnar og hins vegar að efla félagsandann enn frekar. Það er óhætt að segja að þessi markmið hafi náðst í ferðinni. Ingibjörg Guðjónsdóttir kórstjóri stjórnaði söngæfingum af sinni alkunnu fagmennsku en þess á milli var frjáls stund þar sem kórkonur fóru í gönguferðir í góða veðrinu. Bústýruhópur Kvennakórs Garðabæjar hafði af mikilli röggsemi útbúið áætlun þar sem kórkonum var skipt í hópa sem hver hafði sitt hlutverk að útbúa og bera á borð hressingu í matar- og kaffitímum. Þeir sem þekkja til kökubasara kórsins vita að kórinn skipa engir aukvisar þegar kemur að matargerð enda var boðið upp á hverja „fermingarveisluna“ á eftir annarri alla helgina. Á laugardagskvöldinu var haldin kvöldvaka sem að þessu sinnu hafði bleikt þema. Langborð voru dúkuð upp með kertum og servíettum í bleikum lit að sjálfsögðu. Kórkonur birtust svo í salnum ein af annarri í bleikum dressum, með bleikt skart, bleikan augnfarða og varalit og sumar gengu svo langt að mæta með bleikar hárkollur! Mikið var spjallað og hlegið og raddböndin þanin í fjöldasöng. Fjöldi kórkvenna hafði undirbúið skemmtiatriði og er óhætt að segja að þeim hafi verið vel tekið, enda mikið lagt í atriðin og hæfileikakonur á ferðinni.
Kvennakór Garðabæjar fór í sínar árlegu æfingabúðir helgina 10.–11. febrúar. Líkt og undanfarin tvö ár var farið í Skálholt í Biskupstungum. Veðrið var dásamlegt, logn og glampandi sólskin, svo kórkonur fengu að njóta fegurðar þessa sögufræga staðar til fullnustu.Hilmar Örn Agnarsson organisti vann með kórnum
Eftir morgunmat og góða söngæfingu á sunnudeginum var haldið í Skálholtskirkju þar sem organisti kirkjunnar, Hilmar Örn Agnarsson, tók á móti hópnum. Kórinn fékk að æfa í kirkjunni og spilaði Hilmar Örn undir á orgelið í sumum laganna. Einnig veitti hann kórnum faglegar ráðleggingar, enda maður á ferð með mikla reynslu á þessu sviði. Kvennakór Garðabæjar færir Hilmar Erni sínar bestu þakkir fyrir þessa frábæru stund sem svo sannarlega setti punktinn yfir i-ið í einstaklega vel heppnaðri ferð kórsins austur fyrir fjall.

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra