Kvennakór Öldutúns mun halda tónleika í Hamrinum, sal Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Kvennakórinn mun ásamt Kór Öldutúnsskóla flytja kvikmyndatónlist. Gestir á tónleikunum verða þau Hjörleifur Valsson fiðluleikari, Hanna Björk Guðjónsdóttir söngkona og Ívar Helgason leikari og söngvari en tvö síðastnefndu sungu í Kór Öldutúnsskóla sem börn. Stjórnendur tónleikanna verða Brynhildur Auðbjargardóttir og Egill Friðleifsson. Tónleikarnir fara fram sunnudaginn 25. maí kl. 16.00. Miðaverð er kr. 1500 í forsölu en kr. 2000 við innganginn.