Vortónleikar kvennakórsins Norðurljósa á Hólmavík verða haldnir föstudaginn 1. maí næstkomandi kl. 14.00.
Verða þeir að venju haldnir í Hólmavíkurkirkju. Dagskráin verður létt og skemmtileg.
Stjórnandi kórsins er Sigríður Óladóttir og undirleikarar verða þeir Viðar Guðmundsson og Gunnlaugur Bjarnason.
Eins og alltaf líkur tónleikum með hnallþórukaffi, að hætti kvennakórsins.