Freyjukórinn býður upp á sælkeramáltíð og glæsiball með ítölsku sniði í Hjálmakletti í Borgarnesi síðasta vetrardag, 18. apríl. Skemmtun þessi er liður í undirbúningi fyrir fyrirhugaða ferð kórsins til Ítalíu í júní.
Boðið verður upp á fordrykk og 5 rétta máltíð. Yfirkokkur er Gísli, sem gjarnan er nefndur "Mr. Gourmet" og veislustjóri er Sveinbjörn Eyjólfsson "progressisti".
Freyjukórinn syngur, leynigestir troða upp, boðið verður upp á uppistand og fleira til skemmtunar.
Hljómsveit Marinós spilar fyrir danssveiflu fram á rauða nótt.
Húsið opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.500 kr. Miðapantanir í símum: 893 3109 Jói, 843 5355 Jón og 861 3260 Siggi.