Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar verða haldnir þriðjudaginn 6. desember kl. 20 í Digraneskirkju.
Boðið verður upp á einkar fjölbreytta efnisskrá með sígildum jólaperlum, hátíðlegum og léttum.
Með kórnum spilar kontrabassaleikarinn Þorgrímur Jónsson. Stjórnandi tónleikanna er kórstjórinn og sópransöngkonan Ingibjörg Guðjónsdóttir og píanóleikarinn er Sólveig Anna Jónsdóttir.
Forsala aðgöngumiða er hafin hjá kórkonum og á netfangi kórsins kvennakorgb@gmail.com
Forsöluverð 2500 kr.
Miðaverð við innganginn á tónleikadag 3000 kr.
Samkvæmt hefð verður boðið upp á heitt súkkulaði og jólasmákökur að tónleikum loknum.