Kvennakór Akureyrar verður gestakór á aðventukvöldi Kirkjukórs Laugalandsprestakalls sem haldið verður þann 13. desember kl. 20:30 í Grundarkirkju. Yfirskrift aðventukvöldsins er "Syngjum jólin saman inn".
Prestur sr. Hannes Örn Blandon, stjórnandi Daníel Þorsteinsson.
Ræðumaður kvöldsins er Hrund Hlöðversdóttir.