Fimmtudaginn 29. október stendur Freyjukórinn fyrir einstöku konukvöldi í Logalandi í Borgarfirði í tilefni af 100 ára kosningarétti kvenna. Gleðin hefst kl. 20:30.
Sigríður Klingenberg og Soffía Björg Óðinsdóttir verða sérstakir gestir kvöldsins.
Freyjur taka gleðihopp og syngja hressilega nokkur lög, einnig sýna þær fatnað frá Muffin TopKiller. 20% afsláttur af völdum aðhaldsbuxum.
Verð aðgöngumiða kr. 2.500, posi á staðnum.
Seldar verða léttar veitingar á vægu verði.
Skemmtun í sveitinni eins og hún gerist best!