Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur heldur tvenna tónleika í Gamla bíói þann 19. apríl næstkomandi sem ber upp á sumardaginn fyrsta. Tónleikarnir verða kl. 14:00 og kl. 17:00.
Í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Guðmundar Sigurðssonar, sem var einn fremsti revíu- og gamanvísnahöfundur Íslands á 20. öld, og í tilefni þess verður yfirskrift þessara tónleika „Revíur og rómantík“. Flestir Íslendingar sem komnir eru til ára sinna muna einnig eftir Haraldi Á. Sigurðssyni revíuleikara en kórinn syngur lög úr gömlum revíum eftir þessa horfnu heiðursmenn. Á dagskránni verða einnig lög frá stríðsárunum og nýrri dægurlög eftir þau Röggu Gísla, Bubba og Mugison ásamt íslenskum sönglögum sem minna okkur á sumarkomuna.
Einsöngvarar eru tvær ungar söngkonur, Kristín Birna Óðinsdóttir sem var fulltrúi Póstsins og söng svo skemmtilega til styrktar Geðhjálpar um jólin síðustu og Lilja Björk Runólfsdóttir sem er útskrifuð úr djassdeild F.Í.H. og leggur stund á tónsmíðanám í Listaháskóla Íslands. Hljómsveitina skipa auk Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara, Gunnar Hrafnsson bassaleikari og Kjartan Guðnason trommuleikari.
Stjórnandi er Jóhanna Þórhallsdóttir. Þess má geta að þetta verða síðustu tónleikar Jóhönnu með kórnum en hún lætur nú af störfum eftir 17 ára farsælt starf sem stjórnandi Léttsveitarinnar. Miðaverð er 3.500 krónur.
Miðar eru seldir á midi.is og í miðasölu Gamla bíós.