Gospelsystur Reykjavíkur halda tónleika í Háteigskirkju miðvikudaginn 14. maí kl. 20.30. Margrét J. Pálmadóttir stjórnar tónleikunum en á þeim kemur einnig fram einsöngvarinn Seth Sharp sem löngu er landanum kunnur fyrir frábæran flutning á m.a. gospeltónlist. Hljóðfæraleikarar að þessu sinni með Gospelsystrum eru þeir Agnar Már Magússon, Stefán S. Stefásson og Hallgrímur J. Jensson. Tónleikarnir bera heitið "I am his child" og er efnisskráin fjörug með íslenskum og erlendum lögum. Miðar verða seldir hjá kórfélögum og við innganginn, miðaverð er kr. 1.500.-