Jólatónleikar Kyrjanna verða haldnir laugardaginn 28. nóv. n.k. kl. 17 í Kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg.
Kveikt er ljós við ljós..... er yfirskrift jólatónleika Kyrjanna að þessu sinni.
Dagskráin er afar falleg og hátíðleg og er það von okkar og trú að hún muni veita
birtu inn í hugi og hjörtu þeirra sem á hlýða.
Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanóleikari er Halldóra Aradóttir.
Miðasala við innganginn. Miðaverð kr. 1200,-