Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Kvennakórs Háskóla Íslands verða haldnir hátíðlegir jólatónleikar þriðjudaginn 15. desember klukkan 20:00 í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir. Sophie Schoonjans leikur á hörpu.
Á efnisskránni er tónverkið Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten ásamt vel völdum jólalögum til að koma öllum í hátíðarskap fyrir jólin.
Aðgangseyrir kr. 1.500.
Frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur!