Kvennakór Garðabæjar fór á landsmót kvennakóra á Akureyri
Helgina 9.-11. maí var glatt á hjalla á Akureyri, en þá var landsmót kvennakóra haldið þar í bæ með þátttöku 700 syngjandi kvenna, kórstjóra og tónlistarfólks. Þar var einnig gestakór frá Noregi og höfðu norsku konurnar á orði hvað íslenskar konur væru upp til hópa með líflegt og skemmtilegt tjáningarform í söngnum.
Kvennakór Akureyrar á mikið hrós skilið
Landsmótin hafa verið haldin á þriggja ára fresti, en kvennakór Akureyrar stóð að þessu móti og voru móttökur og viðbúnaður eins og best var á kosið og á Kvennakór Akureyrar mikið lof skilið fyrir frábæra vinnu.
Allir tónleikarnir fóru fram í tónlistarhúsinu Hofi en æfingar kóranna voru á nokkrum stöðum í bænum.
Til að gera langa sögu stutta fékk Kvennakór Garðabæjar góðar undirtektir og vakti athygli tónlistargesta fyrir lagaval og flutning, en kórinn flutti fjögur lög undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur.
Nýr kórbúningur
Kórkonur fengu einnig nokkra athygli fyrir nýja kórbúninginn en þær skörtuðu norðurljósa yfirvarpinu frá Buddu-design sem er gert úr handmáluðu silki. Þessi búningur kórsins var vígður á Jazzhátíð Garðabæjar í lok síðasta mánaðar en þá tók kórinn þátt í lokatónleikum hátíðarinnar.
Margar æfingar og tónleikar á tveimur sólarhringum
Fyrirkomulagið á kóramótinu var þannig að kórarnir fluttu hver um sig 3-4 lög á tónleikum á laugardeginum. Á sunnudeginum voru tónleikar hverrar söngsmiðju fyrir sig þar sem flutt voru þau þrjú lög sem æfð höfðu verið tvo daga í smiðjunum. Og að lokum voru sameiginlegir tónleikar allra kóranna, þar sem þessar 700 konur sungu saman undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og tónlistarstjóri íslensku óperunnar.
Kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar með söngsmiðju
Kórinn tók þátt í söngsmiðju ásamt tveimur öðrum kórum sem bar heitið Spunasmiðja og var undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar, organista í Akureyrarkirkju og stjórnanda kammerkórsins Hymnodia. Þar fengu kórarnir það verkefni að spinna með takti, tónum og látbragði í kringum hefðbundin kórlög og var það mjög lærdómsrík og skemmtileg reynsla.
Ingibjörg Guðjónsdóttir kórstjóri tók að sér söngsmiðju á landsmótinu sem bar heitið Norræn kvennakóralgasmiðja og kom í hennar hlut að æfa tvo kóra sem síðan fluttu þessa norrænu tónlist á tónleikum.
Vortónleikar framundan
Þriðjudaginn 20. maí kl. 20:00 verða vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar haldnir í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Miðar verða seldir við innganginn og er miðarverð 2500 krónur.
Netfang kvennakórs Garðabæjar: kvennakorgb@gmail.com
Vefsetur Kvennakórs Garðabæjar: http://www.kvennakor.net/
Einnig að hægt að fylgjast með starfssemi kórsins á facebook síðu Kvennakórs Garðabæjar:
https://www.facebook.com/kvennakorgb