Aðalfundar Gígjunnar 2010
Laugardaginn 23. október kl. 16:00 - 18:00 verður aðalfundur Gígjunnar haldinn í Söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116, 105 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar.
3. Umræða um skýrslu og reikninga.
4. Tillögur og lagabreytingar.
5. Ákvörðun árgjalds.
6. Kosning formanns.
7. Kosning stjórnar og varamanna.
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
9. Önnur mál.
Lagabreytingar og aðrar tillögur frá aðildarkórum skulu berast stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Ingibjörg Pétursdóttir heiðursfélagi Léttsveit Reykjavíkur flytja erindi með yfirskriftinni "það er gaman að syngja saman". Í lok fundar munu fulltrúar frá Jórukórnum halda kynningu á landsmóti kvennakóra sem haldið verður á Selfossi vorið 2011.
Aðildarkórar Gígjunnar eru hvattir til þess að senda formann og stjórnir sínar á fundinn. Við viljum vekja athygli á að hver kór getur sent eins marga fulltrúa og hann vill á fundinn. Tveir fulltrúar hvers aðildarkórs hafa atkvæðisrétt á aðalfundi skv. lögum Gígjunnar.
Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína. Aðildarkórar eru einnig hvattir til að koma með tillögur að lagabreytingum. Breytingartillögur þurfa að berast fyrir fundinn þannig að hægt sé að kynna þær fyrir öðrum kórum með tölvupósti. Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á netfangið gigjan2003@gmail.com fyrir laugardaginn 9. október.
Í tengslum við aðalfund Gígjunnar er áformað að halda málþing kórstjóra kvennakóra sama dag kl. 14. Kórstjórar munu þá hittast og skiptast á skoðunum um þeirra störf. Kórstjórar eru beðnir að láta vita með tölvupósti á netfangið gigjan2003@gmail.com hvort þeir hafa áhuga á að mæta á málþingið eigi síðar en föstudaginn 1. október. Ef næg þátttaka fæst verða sendar nánari upplýsingar til kórstjóra er nær dregur.
Við hlökkum til þess að sjá ykkur sem flestar á fundinum.
Með bestu kveðjum frá stjórn Gígjunnar;
Heiða, Kvennakór Suðurnesja
Jófríður, Kvennakór Kópavogs
Anna Inga, Léttsveit Reykjavíkur
Steiney, Kvennakór Hafnarfjarðar
Anna, Kvennakór Reykjavíkur