Að loknum vel heppnuðum vortónleikum Kvennakórs Reykjavíkur, 3. maí, er stefnan tekin á Kórastefnu við Mývatn 4. - 7. júní. Á kórastefnunni verða um 400 manns að meðtöldum Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Kammerkór Tónlistarháskólans í Bremen.
Dagskráin er þéttsetin með námskeiðum og stífum æfingum sem enda með hátíðartónleikum í Reykjahlíð þann 7. júní. Kórarnir taka líka þátt í tónleikum 4. júní í Skjólbrekku og 5. júní í hvelfingu Laxárstöðvar í Aðaldal. Kvennakór Reykjavíkur undirbýr þessa ferð af kappi og getur ekki beiði eftir því að skella sér í jarðböðin í Mývatnssveit.
Vortónleikar Heklanna verða haldnir í sal FÍH, Rauðagerði 27 klukkan 16.00 sunnudaginn 10. maí.
Mjög fjölbreytt lagaval, allt frá ættjarðarsöngvum til Abba. Boðið verður upp á Kósí kaffihúsastemningu við kertaljós og góða tónlist. Boðið verður einnig upp á léttar veitingar gegn vægu verði. Aðgangseyrir er 1.500 kr. og frítt fyrir 12 ára og yngri, því miður þá er enginn posi á staðnum.
Kórstjóri Heklanna er Björk Jónsdóttir og undirleikari á tónleikunum verður Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Kvennakórinn Vox feminae heilsar vori miðvikudaginn 6. maí kl. 20 í Hafnarborg með flutningi tónlistar frá 16. og 17. öld undir yfirskriftinni „Þar sýprus grær“. Fluttir verða madrigalar og söngvar frá ýmsum löndum, þar á meðal eftir Claudio Monteverdi, Passerau, Giovanni Gastoldi, John Dowland, Thomas Morley, Orlando Gibbons og O. Vecchi.
Madrigalar eru fjölradda veraldleg sönglög og má rekja uppruna þeirra til tíma endurreisnarinnar á Ítalíu, er aðalsmenn tóku að ráða tónlistarmenn í þjónustu sína. Við ítalskar hirðir störfuðu þannig litlir sönghópar sem sungu madrigala fyrir húsbændur og gesti þeirra. Smám saman breiddist þetta tónlistarform út og náði miklum vinsældum og þá einkum á Englandi. Flest ljóðanna fjalla um ástina í sinni margbreytilegu mynd, gleði, unaði, angist, söknuði og kvöl.
Á tónleikunum koma fram ásamt Vox feminae, einsöngvarar úr röðum kórfélaga, Símon Ívarsson gítarleikari og Marion Herrera hörpuleikari.
Listrænn stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir.
Miðasala hjá kórfélögum og í síma 863 4404.
Senjóríturnar verða með vortónleika sína í Neskirkju laugardaginn 9. maí kl. 14:00.
Miðaverð á tónleikana: Fullorðnir kr. 1500
Börn kr. 600
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs